Útborganir um áramót

Þegar unnið er með fyrirframgreidda og eftirágreidda, þá þarf að gæta varúðar við stofnun útborgana um áramót.

Eftirágreiddir - föst laun

Þegar eftirágreiddir fá föstu launin sín greidd í lok desember eru oft aukagreiðslur til handa fyrirframgreiddra starfsmanna, eins og t.d. yfirvinna og bónusar og jafnvel fastir launaliðir sem eru í raun eftirágreiddir.

Þegar útborgunin sjálf er stofnuð, er aðeins hakað við eftirágreidda - EKKI haka við fyrirfram. Það er gert til að dagsetningar útborgunar verði örugglega réttar.

Þegar útborgun hefur verið stofnuð, er smellt á textann Laun í miðju launahrings og Greiðsluformi breytt úr Eftirá í Eftirá og fyrirfram. 

Athugið að bæta þarf handvirkt við færslu fyrir fyrirframgreidda í flipann Önnur tímabil dagsetningum fyrir fyrirframgreidda starfsmenn.

Dagsetningar fyrirframgreiddra verður líka desember sama ár.

Smellið á mynd til að stækka hana.

 

Eftir að opnað hefur verið á fyriframgreidda í útborgun eru fastir launaliðir sóttir. Athugið vel að skrá sérstaklega inn Tímabil launaliðar 1 Eftirá í valskjánum "Fastir liðir" í svæðinu Tímabil launaliðar.

Á þann hátt fá fyrirframgreiddir starfsmenn greidda þá föstu launaliði sem eru í raun eftirágreiddir launaliðir, en ekki mánaðarlaunin sín sem eru fyrirframgreidd.