Endurráða starfsmenn
Þegar einstaklingur/einstaklingar sem hafa hætt hjá fyrirtækinu koma aftur til starfa þarf að enduropna þá í kerfinu. Til að viðkomandi verði virkur þarf að gera nýjar færslur í öllum þeim spjöldum sem er lokað þegar starfsmaður hættir. Hægt er að framkvæma það í einni aðgerð og er hægt að enduropna einn, eða fleiri starfsmenn í einu. Þetta getur m.a. verið hentugt þegar stór hópur sumarstarfsmanna er að koma aftur til starfa. Þegar aðgerðin er notuð til að endurráða hóp starfsmanna er best að gera það fyrir hóp sem er allur að fara í sömu stöðu innan fyrirtækisins.
Í hliðarvalmyndinni undir Kjarni > Mannauður má finna aðgerðina sem heitir Endurráða starfsmenn.
Í hliðarvalmyndinni undir Kjarni > Mannauður má finna aðgerðina sem heitir Endurráða starfsmenn. | |
Á valskjánum sem kemur upp er hægt að velja inn ákveðinn starfsmann eða starfsmenn sem á að enduropna. Þegar búið er að velja starfsmann/starfsmenn opnast ferillinn fyrir enduráðningu starfsmanna. Ef enginn starfsmaður er valinn í valskjánum og ýtt beint á Sækja kemur upp listi yfir alla hætta starfsmenn í kerfinu þegar enduráðningarferilinn er keyrður. | |
Úr þeim lista er hægt að velja þá starfsmenn sem á að enduropna. Ef velja á fleiri en einn er haldið inni Ctrl takkanum og smellt á viðkomandi nafn með músinni. Ef ákveðinn starfsmaður var valinn í valskjánum í upphafi kemur hann einungis í listanum. Þegar búið er að velja starfsmann/starfsmenn þá er smellt á "Next" til að halda áfram. | |
Á síðustu myndinni eru sett inn gildi í þau spjöld sem á að enduropna. Ef verið er að enduropna marga starfsmenn fara þessi gildi í spjöldin hjá þeim öllum. Ef starfsmenn eru með ólíkan lífeyrissjóð, stéttarfélög, orlof eða grunnlaun er annaðhvort hægt að sleppa því að setja gildi í þau svæði eða setja gildi sem eiga við flesta og breyta þeim svo á einstaka starfsmönnum þegar aðgerðinni er lokið. |