Persónuafsláttur.
Meðhöndlun persónuafsláttar |
|
---|---|
| Tegund: Tegundin Persónuafsláttur starfsmanns er valin nema ef um makakort er að ræða, þá er valin tegundin Persónuafsláttur maka. |
| Persónuafsláttur %: Það hlutfall sem starfsmaður má nýta í hverjum mánuði, skv. korti.
Persónuafsláttur út: Síðasti dagur nýtingar persónuafsláttarins. Ef starfsmaður á mánaðarlaunum vill t.d. aðeins nýta persónuafsláttinn að hluta í mánuði, er síðasti dagurinn skráður hér inn. Dagsetningin sem skráð er hér kemur í síðast notað þegar útborgun er lokað. Hefur áhrif á útreikning launa.
Ónotaður: Safnast sjálfkrafa. Ef nýr persónuafsláttur er skráð inn í kerfið, inniheldur ónýttan persónuafslátt, er upphæðin handslegin hér inn. Ekki er hægt að skrá inn í svæðið hærri fjárhæð en sem nemur fjölda mánaða sem liðnir eru af árinu. Kjarni skilar meldingu ef reynt er að skrá hærri fjárhæð með upplýsingum um hve há fjárhæðin má vera á þeim tímapunkti. Þegar persónuafsláttur er tekin út, er æskilegt að eyða þessari upphæð út úr kerfinu. |
| Síðast notað: Þetta svæði stýrir því frá hvaða tíma á að nýta persónuafslátt. Þegar persónuafsláttur er nýskráð inn í kerfið þarf að handskrá hér síðasta dag þess mánaðar sem persónuafsláttur var síðast nýttur skv. upplýsingum sem koma frá RSK Dagsetningin í þessu svæði uppfærist þegar útborgun er lokað og stýrist af dagsetningum í flipanum „Tímabil” sem er skilgreint við stofnun útborgunar og úr svæðini "Persónuafsláttur út". Athugið að ef persónuafsláttur er skráður fram í tímann, þá þarf að skrá rétta dagsetningu í þetta svæði. Ef ekkert er skráð í síðast notað nýtir Kjarni persónuafslátt fyrir einn mánuð. Ef dagsetning síðast notað er ekki síðasti dagur mánaðar, þá mun Kjarni nýta persónuafslátt vegna þessa mánaðar í dögum. Dæmi : Persónuafsláttur er skráð síðast notað 10.október. Kjarni reiknar persónuafslátt frá 11. til 31.okt. eða í 21 dag. Útreikningur persónuafsláttar í dögum er (Persónuafsláttur á mánuði x 12 mánuðir / 365 dögum) |
| Gildir frá: Þessi dagsetning hefur sömu virkni og annars staðar í Kjarna, þ.e.a.s. hún ræður því hvort þetta spjald er opnað í launavinnslu eða ekki. Frá dagsetning verður að vera í gildi innan tímabils útborgunar, þá er spjaldið opnað í útreikningi launa, annars ekki. Ef starfsmaður hefur til að mynda störf 15 dag mánaðar og persónuafsláttur í gildi frá 15 degi mánaðar þá reiknast persónuafsláttur eins og það hefði verið í gildi frá 1 degi mánaðar. Gildir til : Þessi dagsetning hefur sömu virkni og annars staðar í Kjarna, þ.e.a.s. hún ræður því hvort þetta spjald er opnað í launavinnslu eða ekki. Ef dagsetning er innan tímabils útborgunar, þá er spjaldið opnað í útreikningi launa. Þessar dagsetningar hafa ekki áhrif á hlutfall persónuafsláttar. Athugið að ef launaútborgun nær yfir tvo mánuði þá er það tímabilið sem Kjarni skoðar varðandi gildisdagsetningar, óháð greiðsluformi starfsmanns. |
Laun frá utanaðkomandi aðila |
|
| Þeir sem þiggja laun frá fleiri en einum launagreiðanda þurfa að upplýsa um hvaða skattþrep skuli miða við í útreikning á staðgreiðslu. Þessar upplýsingar eru ekki skráðar í persónuafsláttur, heldur beint í launaskráningu eða í fasta liði. Ef um einskiptis aðgerð er að ræða, er launaliður 9140 sleginn inn í launaskráningu og upphæðin fyrir annað skattþrep skráð í upphæðasvæðið.
|
Ef um fastar greiðslur er að ræða, er launaliður 9140 sleginn inn í fasta launaliði starfsmanns á sama hátt, þ.e.a.s. launaliður 9140, eining 1 eða 100 eftir því hvernig launaliður 9140 er stilltur, og svo upphæðin fyrir annað eða þriðja skattþrep. | |
Persónuafsláttur um áramót |
|
| Um áramót þarf að yfirfara spjöldin fyrir persónuafslátt og gera þau klár fyrir nýtt skattaár. Sjá nánar hér
|