8. Skrá og skoða laun í áætlun
Til að skoða það sem skráð hefur verið í áætlun er smellt á Skrá í áætlunarhringnum. Þá opnast sama mynd og opnast í skráningarmynd launa.
Í þessari mynd má sjá heildaryfirilit yfir áætlunina hjá völdum launamanni. Í dæminu hér fyrir ofan má sjá að Mýr-Kjartan Írlandskonungur fær greidd heil mánaðarlaun alla mánuði ársins auk þess að fá 80 auka tíma í dagvinnu og 12 yfirvinnutíma. Í þessari mynd er hægt að stofna nýja færslu, eyða út færslum, sækja aftur fasta launaliði, reikna aftur áætlun og komast í flest spjöld starfsmanns með aðgerðarhnöppum í tækjastiku. Þegar ný færsla er stofnuð í þessari mynd er hægt að afrita skráð gildi út árið með því að nota Crtl+M í fyrsta mánuði og þá afritast gildið í alla mánuði. Til að skoða einstaka mánuð er hægrismellt á viðkomandi mánuð og valið "Skrá mánuð". Þá opnast gluggi sem sýnir hvernig launasamsetning og afleiddar færslur launamanns munu líta út í þeim mánuði. Hér er hægt að tvísmella í svæðið Upphæð til að breyta stöku upphæð, ef t.d. upphæð er ekki sótt í launatöflu.
|
ATH! Breytt verklag við starfslok starfsmanna þegar launaáætlun hefur verið gerð! Þegar búið er að gera launaáætlun fram í tímann, þarf að taka upp nýtt verklag við starfslok starfsmanna. Til þess að starfsmaður komi fram í launaáætlun verður hann að eiga virka færslu í eftirfarandi spjöldum:
|