9. Skoða launaseðla
Á meðan á launavinnslu stendur og eftir að henni er lokið er hægt að skoða launaseðla starfsmanna.
Launaseðlar eru aðgengilegir frá fjórum stöðum í Kjarna.
- Vinstramegin við launahringinn
- Í hliðarvali Kjarni > Laun > Launaseðill
- Í hliðarvali Starfsmenn > Hver starfsmaður á spjald fyrir sína launaseðla
- Í skráningu launa, tækjslá
Hægt er að komast í launaseðla vinstra megin við launahringinn. | |
Þegar sú aðgerð er keyrð kemur upp valgluggi. Ef ekkert er slegið inn í gluggann opnast launaseðlar allra launamanna í útborgun.
| |
Einnig er hægt að opna launaseðil ákveðins starfsmanns í launaskráningar glugganum. Ef sýna á dagsetningar launatímabils á launaseðli er farið í Stillingar/Gildi og sett inn PayPaidDay og í gildi er settur 1. dagur tímabils Ef útborgunardagur er 31.05.2020 kemur tímabilið 15.04-14.05 | |
Eldri launaseðla má einnig finna í spjaldinu Launaseðlar í hliðarvalmynd. | |
Hægt er að vista niður eldri launaseðla, en þá þarf fyrst að endurvinna áramótastöðu fyrir þá útborgun. Aðgerðin er aðgengileg í hliðarvali > Kjarni > Laun > Aðgerðir = Vista launaseðla í skjalaskáp. Áramótastaða er endurunnin í "Skrá" í launahring. Þar er farið í áramótastöðu valins starfsmanns, númer hans fjarlægt úr valskjá en útborgunarvísir skráður inn. Athugið að þegar endurvinna þarf áramótastöðu fyrir fleiri en eina útborgun í einu, eru útborganavísar aðgreindir með kommu. Athugið! Ef vista á eldri seðla, að byrja á því að endurvinna áramótastöðu fyrir elstu (fyrstu) útborgun ársins, vista seðla. Áður en vistaðir eru seðlar fyrir aðra útborgun ársins, þarf að endurvinna elstu útborgun plús næst elstu útborgun o.s.frv. |