Afrita áætlun
Til að afrita gögn úr einni áætlun í aðra þarf að byrja á því að stofna nýja áætlun.
Svo hægt sé að afrita áætlun þarf að vera orðið afrit í einkenninu.
Áætlun er stofnuð á sama hátt og áður, einkenni er skráð 2 og ýtt á tab.
Þegar nafn á áætlun er komið í svæði, þá er textanum afrit bætt inn aftan við heitið.
Þegar búið er að stofna áætlun er smellt á hnappinn Afrita áætlun í áætlunarhringnum. Þá kemur upp valskjár þar sem forsendur afritunar eru settar inn.