Greiðsla orlofsuppbótar

Reikna orlofsuppbót

 

Reikna orlofsuppbót

 

 

Þegar kemur að greiðslu orlofsuppbótar - en hana ber að greiða í síðasta lagi 15. júní ár hvert - þá er byrjað á því að sækja ávinnslu orlofsuppbótar 9272 og ávinnslu orlofsuppbótar tímavinnu 9276 hjá þeim sem hana nota.

Athugið að ef orlofsuppbót er ekki greidd við starfslok, þá þarf að greiða öllum í maí ár hvert. Í þeim tilvikum þarf að breyta gildir til dagsetningum grunnlaunaspjalda þeirra starfsmanna sem eru hættir þannig að þau séu í gildi til loka maí yfirstandandi árs. Þetta þarf að gera áður en ávinnslur eru sóttar.

 

Ef farið er í Ávinnslur í ávinnsluhring er hægt að sjá ávinnslutímabil orlofsuppbótar

 

Orlofsuppbótin er með ávinnslutímabilið “Orlofstímabil” og dagsetningin er frá 1.maí til 30.apríl

 

Til þess að sækja ávinnslur allra starfsmanna er smellt á Sækja í Ávinnsluhringnum.

 

 

Athugið sérstaklega ef ávinnslutímabilið er 2 ár t.d. 1.5.2022  - 30.4.2023, að bæði árin séu skráð í Ár.

Ef nota á núverandi útborgun sem hluta af grunni til útreiknings á réttindum til orlofsuppbótar þá er hakað við Sækja í skráningu í valskjánum sem upp kemur.

Athugið að til dagsetning sé örugglega rétt. Að lokum er smellt á Sækja.

 

Ávinnslan er skoðuð í Skrá

Greiða orlofsuppbót 

 

 

Til að senda skuldbindinguna yfir í launaútborgun til greiðslu, er farið í Skrá og þar valið aðgerðahjólið í tækjaslánni og velja þar “Flytja ávinnslu í skráningu”.

 

Þar er starfsmannanúmeri eytt úr svæðinu “Launamenn”og númer launaliðar slegið inn í reitinn “Launaliðir”. Áður en smellt er á Flytja þarf að velja hvort geyma eigi niðurstöðu.

Til þess að flytja færslur yfir þarf að velja annað hvort "Geyma ef engar villur" eða "Geyma þrátt fyrir villur". Við mælum með seinni valkostinum og er hann sjálfgefinn.

Athugið að rétt útborgun sé valin í Útborgun.

Hakið í "Yfirskrifa tímabil" kemur sjálfvalið og skiptir það tímabili uppbóta eftir greiðsluformi launamanns í útborgun og setur bókunardag samkvæmt skilgreiningu útborgunar. Ef hakið er tekið úr koma uppbæturnar í launaskráningu með sömu dagsetningum og er í ávinnsluskráningu en þar eru allar færslur á tímabili vegna eftirá greiðsluforms og eftirá bókunarmánuði. Bókunarmánuður í launaskráningu verður alltaf samkvæmt greiðsluformi launamanns í útborgun. Ef senda þarf skuldbindingu aftur til greiðslu er hakað í "Eyða skuldbindingu fyrir" til að eyða út áður sendum færslum.

 

Ef bæði er unnið með orlofsuppbætur fyrir mánaðarlaun og tímalaun, þá þarf að smella á plúsinn við svæðið Launaliðir og slá inn bæði 580 Orlofsuppbót og 581 Orlofsuppbót tímalaun, eða önnur þau númer sem eru í notkun hjá viðskiptavini.

 

Þegar búið er að flytja orlofsuppbótina úr ávinnslum er hægt að skoða færslurnar í launaskráningu þeirrar útborgunar sem valið var að flytja þær í.